Eyja Peyja
22.04.2007 00:24:11 / eyja

Long Time .....

Váá... var algerlega búin að gleyma lykilorðinu inná þessa blessuðu síðu, enda næstum ár frá seinustu skrifum ! Ekki að það sé ekkert búið að vera að gerast undanfarið.. myndi frekar kenna letinni um! En jæja, er allavega búin að vera hér á klakanum í 4 mánuði þótt ótrúlegt sé. Hef verið að vinna á fullu í World Class sem er búið að vera rosa ánægjulegt og gaman að kynnast helling af frábæru fólki. En svo ætla ég að halda aftur út í hinn stóra heim á morgunn og klára aðeins meira í náminu.. þ.e klára graduate nám í Florida :) Jamm, hún Eyja litla ætlar að spóka sig um á Florida næstu tvö árin eða svo.. þó svo að það verði nú nokur stopp a Íslandinu góða í millitíðinni :)  Veit að eg er alveg hræðilegur bloggari, en er samt að spá í að setja kannski upp nýja síðu svo ég geti nú komið með smá frettir úr sólinni :) Kem með það núna á næstunni.

 Verð í bandi við ykkur..

Msn-ið mitt er e.inga@isl.is   ... svo endilega heyrið í mér :)

 

LOVE


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 02:12:39 / eyja

Til hamingju FH-INGAR!!

Já maður er búin að sitja límdur yfir tölvunni í gær og í dag og fylgjast með úrslitunum. 

Langar að óska öllum FH- INGUM nær og fjær innilega til hamingju:haha::haha::haha:  Mér langaði náttla mest af öllu að vera á staðnum og vona innilega að ég verði með á næsta ári!

Fékk að vera pínu með í stemmningunni í gegnum símann... saknaði allra svo óbilaðslega mikið!!!.  Bikarpartýin okkar eru yfirleitt ekki á verri endanum en eftirminnilegast var samt þegar við stelpurnar tókum okkar til og gerðum trailerinn okkar þarna um árið.. váts hvað það var gaman!!!  Mér finnst að við verðum að ná að grafa hann upp og rifja þetta allt saman upp!!

Er sjálf farin að æfa á fullu og ætla að reyna að drulla mér í form8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 02:23:04 / eyja

BIKAR '06...

Já bara Bikar á morgunn. Skemmtilegasta mót flestra íslenskra frjálsíþróttamanna og soldið svekkjandi að vera ekki með! Já ekki með í fyrsta skipti í ansi langan tíma. Hef keppt seinustu 6 ár með FH og þar á undan einhver ár með Aftureldingu. Stemmningin á bikar er líka engu lík og yfirleitt nær maður að framkalla einhverja extra orku til að ná öllu úr sér og safna stigum.. oh þetta er svo gaman! Hefði auðvitað roosa mikið langað að hlaupa en það er víst ekki hægt að vera á öllum stöðum í einu, er nú þegar búin að kaffæra mér í lærdómi og vinnu´hérna úti.

Stóra spurningin er svo bara hvort við FH-INGAR náum að vinna í hmm... ja ég myndi segja 12 skiptið í röð??? Er búin að pæla aðeins í þessu og ef ég er honest þá tel eg okkur með framúrskarandi karlalið. Kvennakeppnin getur hins vegar farið allavega held ég og ég býst við að Fjörmann komi soldið sterkur inn með nokkrar framúrskarandi stelpur. Bíð spennt hérna við tölvuna heima og fylgist með úrslitum 'live' á netinu.

Langar að óska öllum góðs gengis um helgina, Silja ég mun hugsa mjög sterkt til þín... það verður nóg að gera hjá þér!! Og svo auddað henni Sigrúnu minni sem kemur alla leið heim að keppa.

ÁFRAM FH:haha::haha::haha::haha::haha::haha:

 

Fann enga keppnismynd frá bikar, en hérna eru ég og Sigrún mín í bikarpartýinu í fyrra!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 01:54:46 / eyja

Marion Jones...

.....hvað er hún eiginlega að spá kellingin?? Hef alltaf haldið mikið uppá hana og var ekkert smá ánægð með 'Come-backið' hennar í sumar.  Mér fannst hún sína þvílíkan karakter að koma svona sterk til baka eftir að hafa verið bendluð við lyfjahneykslið þarna um árið. Ég hef einhvernveginn alltaf litið á hana sem fyrirmynd og hef alltaf trúað uppá sakleysi hennar þótt það sé kannski soldið gruggugt að báðir kallarnir hennar hafi fallið !! En EPO... bíddu hvað hafa spretthlauparar að græða á því?? Er það ekki til að fjölga rauðum blóðkornum og auka súerfnisupptöku.. skil ekki hvernig 100m hlaupari getur grætt á því! Las í grein um þetta mál að þeir testa víst bara fyrir EPO í fáum tilfella, og mjög sjaldan hjá spretthlaupurum þar sem það er mjög dýrt og krefst mikillar vinnu.. En eins og kom fram í greininni : "Wherever there is smoke, you do extra testing. This may have been a targeted test." B-sýnið kemur svo víst í byrjun september og ef ´það stemmir þá er það bara bann!!

Svo er Gatlin víst búin að viðurkenna alltsaman og komin í 8 ára bann!! Hef líka alltaf þótt hann skemmtilegur karakter og haldið uppá hann. Spurning hvort það séu einhverjir fleiri með eitthvað gruggugt í pokahorninu??


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 02:29:29 / eyja

hiti, sól, raki, rigning, þrumur, eldingar....

Ég er búin að vera að tékka á fólki hérna hvort það se eitthvað inni í Rockstar Supernova, svona eins og um 90% Íslendinga. Fólk kannast svona við þetta en hef ekki ennþá hitt manneskju sem hefur seð þættina!! Ég var nú orðin voða spennt að fylgjast með honum Magna okkar í kvöld en var að fatta að ég var líklega að missa af þessu.. gleymdi að pæla í tímamismuninum:$ Var líka orðin voða spennt fyrir Prison Break , en season tvö var að byrja hérna í gær.... en mér tókst að missa af því líka! Var að kaupa mér fyrstu seríuna á DVD og ætla að drífa mig að klára þættina sem ég á eftir... magnaðir þættir alveg! Annars er bara allt í góðu róli hérna, hef eitt alveg tonni af moní seinustu daga. Þurfti að skipta um rafgeymi í bílnum, fara með bílinn í skoðunn- endalaust vesen þessi bíll! Svo átti að fara að rukka mig um 300$ fyrir einhver þrjú símtöl heim núna eftir að ég kom út8|gleymdi að aktiveita símann aftur eftir að ég kom, en ég var búin að setja hann a eitthvað vacation plan í sumar... en var að plöggast í þessu áðan og slapp undan þessu! En það sem mér finnst samt verst af öllu er að litli sæti I-podin minn er ónýtur! Er mikið að spá hvort ég eigi ekki bara að gefa mér nýjan í ammælisgjöf... get bara ekki verið án músíkar heilu dagana meðan ég er á campus!! plís sannfærið mig að ég meigi alveg leyfa mér að kaupa nýjan;)

Er eitthvað hálf einbeitingarlaus við skólann... er á BILLJÓN að læra fyrir GRE prófið sem ég tek 5 september. Er búin að kaupa helling af námseftni á netinu því ég verð að massa þetta próf!! Held ég muni því ekki eiga mikið líf næstu tvær vikurnar.

þúsund kossar og knús, Eyja


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 01:43:06 / eyja

litla ammælisdelpa komin til Athens ;)

Já er semsagt búin að yfirgefa klakann í bili og er lent í sólinni og hitanum hérna í Athens. Aldrei þessu vant gekk allt í sómanum hjá okkur sigrúnu á leiðinni, fengum okkur hótel í baltimore og héldum svo ferðinni áfram hérna til Athens í gær. Það er alveg ótrúlegt hvað ég næ alltaf að veikjast svona nokkra daga áður en ég kem hingað.. er gersamlega að DEYJA úr hálsbólgu, kvefi og leiðindum:$ En fékk pínu medicine áðan og er svona aðeins að hressast til. Dagurinn í dag fór í það að mæta í tíma, fá bókalista, redda bókum, banki... sami gamli pakkinn!! Þrátt fyrir slappleikann skellti ég mér líka í 30 mínútna skokktúr í hitanum og rakanum og hressti mig svo við í lauginni 8)

Svo á snúllan líka ammæli í dag, er alveg orðin hundgömul8) Er búin að fá nokkra ammælispakka en krúttið mitt hún Sigrún var samt bestust og gaf mér ógillega flotta gjöf... Takk enn og aftur Brúna mín, I miss you lots!! Fyrir þá sem ekki vita búum við semsagt ekki saman lengur sem er alveg hræðilegt fyrir 'kærustupar' eins og okkur!!! Erum samt búnar að gera díl og ætlum að skiptast á að hafa sleepover um helgar :lol: En jæja.. vorum að koma inn af Carraba´s, sem var amk uppáhaldsstaðurinn okkar en eg held að ég se að komast af því að ég er ekki eins mikil pasta-kelling og ég used to be. Fæ alltaf eitthvað illt í mallann eftir að vera búin að belgja mig út af rjómapasta og brauði... Erum svo núna að fara yfir til strákanna og hver veit nema maður líti aðeins við í bænum;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 18:50:19 / eyja

FússBall

Jæja þá er stærsta íþróttahátíð ársins byrjuð, ekki leiðinlegt það!! Ég er búin að fylgjast með keppninni síðan á ítalíu '90 og man meira segja pínu óljóst eftir keppninni '86 þ.e þegar maður var gólandi inní stofu með danska laginu Vi er röde- we er hvide!! Hver man ekki eftir þessu lagi??? Er allavega voða spennt fyrir þessu öllu saman en fjörið byrjar nú samt aðalega eftir riðlakeppnina!

Þessi hér er náttla bara lang flottastur;) Varð alvarlega skotin í honum Ronaldo vini mínum eftir að ég sá hann fyrst á EM í hittifyrra! Hans vegna hef ég því ákveðið að halda með Portúgölunum!!

Annars kíkti ég aðeins út á bæjarrölt í gærkveldi. Vorum í góðu tjilli heima hjá Írisi og kíktum svo í bæinn svona á þessa helstu staði. Það var reyndar eitthvað voða lítið um manninn í gær, í rauninni miklu meira á fimmtudagskvöldið!! Fór þá á vegamót og borðuðum við þar og sátum svo í góðum gír frameftir kvöldi! Mæli mjög svo með matnum á vegmótum.. hann klikkar bara aldrei;) Annars vaknaði ég svo galvösk klukkan níu í morgunn að hjálpa til hja honum pabba að flytja, en kallin er að flytja yfir í nýja hverfið í grafarholtinu! Er gersamlega búin á því enda búin að bera endalaust mikið af kössum og húsgögnum í allan dag!! Kvöldið er því óráðið, var búin að plana mosódjamm með Heru og félögum en hef hreinlega bara enga orku núna. Svo það er soldið freistandi að skella þessu bara í kósýkvöld með spólu og góðgæti:haha:

Á morgunn er ég svo með saumó... loksins... en við stelpurnar byrjuðum semsagt að halda saumóa þegar við vorum 9 ára en þetta hefur pínu dottið niður hjá okkur á seinustu árum! Ætla að kíkja í uppskriftabækur í fyrramálið og undirbúa eitthvað fínerí!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 00:09:41 / eyja

Bara þetta venjulega....

Játs maður er bara búin að vera á klakanum í akkúrat 3 vikur! Er búin að vera í nokkuð góðu tjilli og hitta flesta og hafa það voða gott! Er reyndar ekki nógu sátt við veðrið hérna, held ég sé  búin að sjá sólarglætu einu sinni á þessum þremur vikum.. en æji samt soldið kósy þetta týpíska íslenska veður finnst mér8) Er komin með kort í laugum og hef svona verið að dunda mér þar eftir vinnu svona rétt til að halda mér við:S Soldið skrítið reyndar að vera á þessu frjálsa prógrammi og vita ekkert hvað maður er að gera!! Finnst alveg glatað að vera ein að æfa!! Rakel skotta hefur reyndar verið dugleg að láta sjá sig og drap hún mig næstum áðan í einhverju intervali á brettinu! Svo er minns líka farin að lyfta 3svar í viku... ein eitthvað að reyna að ná sér í pínu vöðvamassa:S Spurning svo að prófa kannski brautina eitthvað aðeins fljótlega! Fékk allavega pínu kítl í tærnar að horfa á vormótið áðan! Ekki það að ég hefði eitthvað viljað vera þarna í keppnisgallanum í kuldanum, en viðurkenni að það yrði soldið svekkjandi að sitja uppí stúku á MÍ eða bikar...ætla bara að sjá til með allt saman8|

Eyjulíus ætlar svo að láta heyra í sér svona öðru hverju þegar hún nennir

...........Aðeins tveir dagar í HM... get ekki beðið:!::!::!::!:

ENNNNNN...... ég er ekki með sýn svo fólk sem hefur áhuga á fótbolta og vill vera svo vænt að leyfa Eyju að horfa á nokkra leiki með þeim má endilega láta hana vita8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 00:24:41 / eyja

Ein í kotinu

Það er nú ekki mikið að fretta héðan fyrir utan það að Ég er búin í prófunum!! þvílíkur léttir að geta loksins tjillað aðeins og slakað á. Mér gekk bara mjög vel, er búin að fá flestar einkunnirnar. Var búin að vera þvílíkt stressuð að halda þennan biomechanics fyrirlestur en hann gekk bara alveg glimrandi. Fyndið hvað um leið og maður byrjar þá er þetta svo ekkert mál! Þó svo að enskan er alveg á hreinu þá er þetta svona aðeins erfiðara heldur en að gera eitthvað á íslensku. Svo er maður líka búin að vinna að þessu í allan vetur og langaði að gera þetta með stæl. Ég og Sigrún byrjuðum strax að dekra við okkur og skelltum okkur á hárgreiðslustofu hérna í fyrsta skipti í USA. Vorum bara nokkuð sáttar en ég þorði samt ekki að láta klippa mig neitt, fékk mér bara dekkri lit og Sigrún ljósar strípur;) Svo er Sigrún mín núna farin að keppa á SEC. Finnst alveg ótrúlega skrítið að vera ekki þarna, hef farið á öll SEC mótin bæði úti og inni og þetta hefur alltaf verið uppáhaldsmótið mitt. En er samt ánægð með mig að hafa tekið mér pínu hvíld. Líður alveg ótrúlega vel í líkamanum núna og hef æft bara eins og ég vil undanfarið, lyft helling og er nú fyrst að enjoy-a þess að hlaupa langt. Hver veit nema maður setji á sig gaddaskónna eitthvað afturí sumar ??

Er svo bara að fara að gera mig reddý fyrir heimkomu, er meira segja farin að taka töskunrar fram! ´Náði að liggja útí laug í allan gærdag, en veðrið er búið að vera alveg fáranlegt undanfarið... bara skýjað og kalt!! Svo er planið að kíkja á Siljuna okkar á mánudaginn og hafa sleepover!

En jæja, Eyja ætlar að fara að gera sig til því ég ætla að kíkja í bæinn með þeim fáu sem eftir eru hérna.... en það verður samt örugglega nóg líf í bænum því það var graduation day í dag!

Kveð að sinni, Eyja


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 07:01:28 / eyja

Energy!!

Það er einhver svakaleg orka búin að vera í mér undanfarið. Er búin að vera að vaka fram undir morgunn seinustu daga og ekki vegna þess að ég hef verið að læra heldur er ég bara ekkert búin að vera þreytt! Hef meira segja þurft að forðast alla koffín drykki undanfarið svo ég verði ekki alveg hyper og fæ mér bara decaf  kaffi svona rétt uppá bragðið!  En ég er að fara í fyrstu prófin mín á eftir. Það hittir þannig á að ég tek eitt próf frá 9-12 og þarf svo liggur við að hlaupa yfir í það næsta sem byrjar kl 12. Þoli ekki að skipuleggja mig fyrir tvö próf sama daginn. Var líka bara að ná að byrja að læra í dag þvi ég er búin að vera alla vikuna mína að klára Biomechanics fyrirlesturinn.. meiri vinnan sem fer í það! En þegar ég set mig í læriham þá get ég munað alveg ótrulega mikið efni á mjöög stuttum tíma- hef ss mjög gott skammtimaminni sem er kannski ekki svo góður kostur því ég á það til að gleyma flestu um leið og ég er búin í prófinu!  Ég get samt líka sett mig í svona hreingerningarham og ég væri til að bjóða í þann sem getur lagað til á styttri tíma en ég! Ég hata drasl og á td svakalega erfitt með að læra þegar það er drasl inni hjá mér. Get heldur alls ekki eldað eða bakað í drasli!... en ég er samt líka svaka fljót í að drasla til aftur!

En já, er svo búin að bóka miðann minn heim þann 17 maí og lendi á Íslandinu góða 18 maí- þeas ef að allt gengur upp ( sem gerist ekki svo oft þegar ég ferðast..say no more!):$ En ég byrja svo ekki að vinna fyrr en í júní sem er bara voða næs:) Verð að vinna á sjúkraþjálfunarstofunni Styrkur og hlakka ekkert smá til- gott að komast inná stofu og fá pínu reynslu! Var á Grensás í fyrra og mér langaði að prófa eitthvað nýtt núna og kynnast fleiri hliðum á starfinu!

En jæja, ætla að kíkja aðeins i bækurnar

nite, Eyja


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 03:44:11 / eyja

skólinn búinn yeah....

Jahérna... bara seinasti skóladagurinn á þessari önn liðin og ekkert eftir nema að massa prófin! Þau verða ekki svo slæm núna og held ég að þetta verði bara ágætt! Það er búið að vera fáranlega lítið að gera seinustu vikurnar svo ég er orðin alger letihaugur og finnst bara ágætt að fara að læra fram á nótt næstu vikuna.. alltaf pínu stemmning8| Er búin að vera að undirbúa huges presentation og project í biomechanics tímanum mínum í allan vetur sem ég er núna að leggja lokahöndina á... æðislegt að sjá fyrir endann á þessu:haha:

Annars eru jú seinustu dagar búinir að vera rosa rólegir, þurfti að fá einhverja kvefpest og hálsbólgu um helgina og er núna komin með hósta ofan í lungu!! Þanning að það var ekki mikið gert´um helgina, fór í pínu verslunarleiðangra og deit með Kristu roomie 8) Það var líka tómlegt hérna því Sigrúnin mín fór til Iowa að keppa og gekk bara rosa vel.. er alveg svaka spennt að fylgjast með framhaldinu, hún á eftir að standa sig stelpan:)  Ég sjálf hef ekki náð að hlaupa mikið seinustu daga út af kvef ógeðinu og ég er líka hætt að þora að hlaupa í skóginum okkar vegna snákanna sem eru komnir á stjá í hitanum. Jill roomie-inn minn steig næstum því um daginn á huges feita, brún-röndótta slöngu og það er nóg fyrir mig til að halda mig frá þessum stígum:S Er með snákafóbíu dauðans!! Pöddurnar hérna inni eru líka að gera mig brjálaða, langar ekki að vita hvað er skríðandi á mér meðan ég er sofandi!!

Farið vel með ykkur í prófunum,
Love, little Eyja


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 22:42:24 / eyja

jæja dömur og herrar...

Bara komin mánuður síðan Eyja lét heyra í sér seinast. Hún ákvað að taka sér smá frí fra skrifum en er allavega núna komin í leitirnar á ný!

Það er heldur betur margt búið að gerast síðan seinast og nenni ég ekki að fara að rekja það allt í smáatriðum. Er búin að keppa á nokkrum mótum sem hafa gengið upp og ofan, held bara hreinlega að ég sé orðin pínu þreytt á þessu og leggi kannski keppnisskónna á hilluna í smá tíma. Er alltof active til þess að fara að hætta að æfa eða eitthvað svoleiðis, langar auðvitað að halda mér í góðu formi hvort sem það verður með því að hlaupa eða eitthvað annað og svo sér maður bara til!!

Skólinn er búin að vera frekar rólegur undanfarið og ég veit bara ekki hvað ég á að gera við mig þegar ég hef lítið að gera. Fínt að fá nokkra daga í tjill en svo vil ég bara komast í sömu rútínuna aftur. En er allavega búin að fá helmingi meiri svefn núna seinustu vikur heldur en ég er vön svo maður ætti að vera ansi vel úthvíldur svona fyrir lokaprófin... sem byrja btw í næstu viku og ég klára seinasta 9. maí. Það er svona spurning núna hjá manni hvenær maður kemur heim á klakann, þarf að fara að panta miðann heim sem fyrst. Er að pæla að koma kannski 18 maí, þá verður maður líka komin heim fyrir Eurovision helgina;) Er orðin svaaaaklega spennt að koma heim og hitta alla:o

EN jæja, ætlaði bara svona rétt að láta vita að Eyja sé fundin... hún ætlar að vera dugleg að láta heyra frá ser.

Lots Of Love,


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 05:20:18 / eyja

Fyrsta mótið

Það er voða lítið að fretta þessa dagana, líf mitt snyst nánast bara um skólann og æfingar eins og stendur. Held samt að ég geti staðfest það að sumarið er loksins komið hérna eftir laaanga bið8) Er vakin upp á hverjum morgni klukkan 6 af sama fuglinum sem syngur fyrir utan gluggann minn. Svo er maður farin að mæta aðeins faklæddari í skólann og komin með allskonar stuttbuxna og toppaför.. bara gaman það, það lifnar svo yfir manni og mér finnst svo virkilega gaman að æfa í þessu veðri!! Æfingar ganga btw mjög vel núna finnst mér, erum búin að breyta æfingunum loksins og ég er farin að gera það sem hentar mér miklu betur. Tók algera killer æfingu á mánudaginn og hef ekki fengið svona fílingu eftir æfingu í örugglega 2 ár.. lá alveg gersamlega dauð á brautinni og gat ekki hreyft mig í góðan hálftíma!! Samt svo góð tilfinning eftir á:haha: Er að fara að keppa á fyrsta utanhúsmótinu núna á laugardaginn í Atlanta. Hleyp líklega 800m og 4x400.. interesting:haha: Vonandi skila æfingarnar sér fljótlega, við erum ekkert búin að hvíla fyrir þetta mót en ég er samt voða vel stemmd!!

Vikurnar fljúga svo frá manni hérna, við eigum bara 4 vikur eftir fyrir lokaprófin! Og þennan tíma verður brjálað að gera, er búin að vera í allskonar prófum og í þessari viku var ég að undirbúa fyrirlestur sem ég þurfti að halda í morgunn í biomechanics. Aðeins erfiðara að halda fyrirlestra í svona fögum þar sem það er svo mikið af hugtökum og skrítnum orðum sem maður þarf að muna. En þetta gekk alltílæ og ég er fegin að þetta sé búið.

En jæja, ég bið góða nótt... læt heyra í mér hvernig helgin fer.

LOVE, Eyja


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 00:31:56 / eyja

frábær vika;)

Alltaf gott að vera komin heim.. þó svo að það sé nú aðvitað best að koma heim Ísland;) En jæja þessi ferðalög mín verða nú bara hver brandarinn á eftir öðrum, held ég verði að fara að hætta að segja fólki frá þessu ef ég ætla einhverntímann að fá einhvern til að ferðast með mér:S Vélin mín fór nú á rettum tíma fra San diego i gær og átti ég að millilenda í Dallas og skipta um vél. Hirrðu, haldið þið að það hafi ekki verið eitthvað svo mikil traffík á flugvellinum útaf einhverri rigningu svo vélin mín sveimaði í hringi í tæpan klukkutíma og urðum við a endanum að fara til Lusiana til að taka meira bensín. Komst svo á endanum til Dallas en var þá auddað fyrir löngu búin að missa af vélinni en hljóp í gegnum allan völlin og rétt náði næstu vél. Sú ferð var btw hrikalegasta flugferð sem ég man eftir. Ég flýg svakalega mikið en þetta var verra en allt, hrikalegur hristingur, sveigjur og hljóð. Hélt líka að stélið hafi farið í jörðina við flugtak og helling af kellingum æptu:| Fór með bænirnar mörgum sinnum á leiðinni og var SVO fegin að lenda loksins. Og það ótrúlega var að ég fékk töskuna mína með einhverjum hætti... svo þetta var nú kannski ekki svo slæmt;)

En þrátt fyrir allt þetta ferðalaga vesen þá var þessi ferð sko alveg þess virði. Náði að slaka alveg hellings á og gera fullt af skemmtilegum hlutum.

  • Fór á Pacific Beach í sólbað og rölti um strandlengjuna sem var ótrúlega falleg.
  • Við fórum á röltið í down town San Diego á svokallað Gaslamp District. Þar voru örugglega hundruðir veitingastaða og enduðum við inni á einum svaka góðum ítölskum þar sem ég fékk mér rándyra máltíð. Snigla og sveppi í forrétt og fullt af sjávarréttum í aðalrétt.:) Keyrðum svo yfir Coronado brúnna yfir á svona litla eyju þar sem við gátum séð yfir alla san diego. Geggjað útsýni og smelltum nokkrum myndum.

  • Við fórum í Disneyland sem var alveg svaka fjör. Villtist einhvern veginn í rússíbana en ég vissi ekkert hvern fjandann ég var að fara í.. var ekkert búin að sjá þetta áður en ég settist í tækið. Er sko alveg skíthrædd við svona tæki en þetta var rosa gaman. Garðurinn var líka ótrúlega fallegur og vel hirrtur og svaka gaman að skoða

 

  • Keyrðum til LA og villtumst inn á ítalskan veitingastað. Eftir smá stund áttuðum við okkur á því að við vorum á gay stað því það voru bara karlmenn á stefnumótum í kringum okkur. En þa var bara kúl;)
  • Fórum í Wild Animal Park sem er svaka stór dýragarður með villtum dýrum. Fórum með lest um garðinn og keyrðum framhjá öllum dýrunum í sínu náttúrulega umhverfi.

  • Svo æfði ég auðvitað með honum Bjögga við svaka fínar aðstæður8)

                

 

Myndavélin mín bilaði en Kristín lánaði mér sína svo ég gat smellt af nokkrum myndum. Bjöggi ætlar svo að senda mér sínar fljótlega.

En ég hafði alveg ótrúlega gaman, Takk æðislega fyrir mig Bjöggi og Kristín!!

Núna er svo bara að koma sér inn i rútínuna aftur, skólann og öll þau skemmtilegheit:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 04:41:46 / eyja

San Diego...

er sko nettur pleis:haha: Er alveg dolfallin fyrir borginni og umhverfinu hérna í kring. Pottþétt staður sem manni langar að eiga sumarhús á í framtíðinni. Það er bara svo endalaust mikið hægt að gera hérna... En jæja, ég komst nú á leiðarenda a föstudaginn eftir ENGAN svefn í tvo daga!! Bjöggi pikkaði mig upp og guess what... Engin taska!! Var of þreytt til að svekkja mig á því og við skelltum okkur á hinn heimsfræga hamborgarastað In & Out burgers þar sem ég hikaði ekki við að stúta tveimur borgurum, frönskum og súkkulaðisjeik:haha: Very good.. Tók svo góðan blund og svo skelltum við okkur að borderunum við Mexico í mall og versluðum pínu. Gærdagurinn var víst eins og það gerist verst hérna í Kaliforníu: Rigning og Rok.. Vorum mest allan daginn að stússast í veseni út af töskunni minni og horfðum svo á Kristínu keppa, en hún stóð sig rosa vel stelpan:haha:

Í morgunn fékk ég svo loksins töskuna mína og gat ég þa farið og tekið almennilega æfingu. Fórum á mjög flottan völl og tókum fína æfingu í sól og blíðu. Fórum svo niður á Pacific Beach sem er btw æðisleg þar sem Bjöggi tókst að plata mig og Krístínu til að Surfa með honum. Vorum svaka flottar í göllunum en sjórinn var ÍSkaldur!! Öldurnar voru líka svakalegar svo við entumst ekkert voða lengi. En geggjað gaman samt og vonandi skellum við okkur aftur í vikunni þegar sjórinn verður betri!! Keyptum svo alls konar í matinn og grilluðum og höfðum grillaða banana, súkkulaði og ís í desert:haha:

Planið fyrir morgundaginn er svo að fara á æfingu í fyrramálið og vonandi tjilla á ströndinni og ná í pínu lit...

Eyja surfari;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8