Það er voða lítið að fretta þessa dagana, líf mitt snyst nánast
bara um skólann og æfingar eins og stendur. Held samt að ég geti
staðfest það að sumarið er loksins komið hérna eftir laaanga bið
Er vakin upp á hverjum morgni klukkan 6 af sama fuglinum sem syngur
fyrir utan gluggann minn. Svo er maður farin að mæta aðeins
faklæddari í skólann og komin með allskonar stuttbuxna og
toppaför.. bara gaman það, það lifnar svo yfir manni og mér finnst
svo virkilega gaman að æfa í þessu veðri!! Æfingar ganga btw mjög
vel núna finnst mér, erum búin að breyta æfingunum loksins
og ég er farin að gera það sem hentar mér miklu betur. Tók algera
killer æfingu á mánudaginn og hef ekki fengið svona fílingu eftir
æfingu í örugglega 2 ár.. lá alveg gersamlega dauð á brautinni og
gat ekki hreyft mig í góðan hálftíma!! Samt svo góð tilfinning
eftir á
Er að fara að keppa á fyrsta utanhúsmótinu núna á
laugardaginn í Atlanta. Hleyp líklega 800m og 4x400..
interesting
Vonandi skila æfingarnar sér fljótlega, við erum
ekkert búin að hvíla fyrir þetta mót en ég er samt voða vel
stemmd!!
Vikurnar fljúga svo frá manni hérna, við eigum bara 4 vikur
eftir fyrir lokaprófin! Og þennan tíma verður brjálað að gera, er
búin að vera í allskonar prófum og í þessari viku var ég að
undirbúa fyrirlestur sem ég þurfti að halda í morgunn í
biomechanics. Aðeins erfiðara að halda fyrirlestra í svona fögum
þar sem það er svo mikið af hugtökum og skrítnum orðum sem maður
þarf að muna. En þetta gekk alltílæ og ég er fegin að þetta sé
búið.
En jæja, ég bið góða nótt... læt heyra í mér hvernig helgin
fer.
LOVE, Eyja