Eyja Peyja
27.04.2006 22:42:24 / eyja

jæja dömur og herrar...

Bara komin mánuður síðan Eyja lét heyra í sér seinast. Hún ákvað að taka sér smá frí fra skrifum en er allavega núna komin í leitirnar á ný!

Það er heldur betur margt búið að gerast síðan seinast og nenni ég ekki að fara að rekja það allt í smáatriðum. Er búin að keppa á nokkrum mótum sem hafa gengið upp og ofan, held bara hreinlega að ég sé orðin pínu þreytt á þessu og leggi kannski keppnisskónna á hilluna í smá tíma. Er alltof active til þess að fara að hætta að æfa eða eitthvað svoleiðis, langar auðvitað að halda mér í góðu formi hvort sem það verður með því að hlaupa eða eitthvað annað og svo sér maður bara til!!

Skólinn er búin að vera frekar rólegur undanfarið og ég veit bara ekki hvað ég á að gera við mig þegar ég hef lítið að gera. Fínt að fá nokkra daga í tjill en svo vil ég bara komast í sömu rútínuna aftur. En er allavega búin að fá helmingi meiri svefn núna seinustu vikur heldur en ég er vön svo maður ætti að vera ansi vel úthvíldur svona fyrir lokaprófin... sem byrja btw í næstu viku og ég klára seinasta 9. maí. Það er svona spurning núna hjá manni hvenær maður kemur heim á klakann, þarf að fara að panta miðann heim sem fyrst. Er að pæla að koma kannski 18 maí, þá verður maður líka komin heim fyrir Eurovision helgina;) Er orðin svaaaaklega spennt að koma heim og hitta alla:o

EN jæja, ætlaði bara svona rétt að láta vita að Eyja sé fundin... hún ætlar að vera dugleg að láta heyra frá ser.

Lots Of Love,

Rakel skrifaði
Loksins ;) Gaman að heyra frá þér! Gott hjá þér að ætla að slappa aðeins af, það er örugglega full þörf á því og svo kemurðu bara hrikalega sterk til baka!!! :) Hlakka til að skokka, synda, hjóla, línuskautast...með þér í sumar. Activa Eyja!
Þórhildur skrifaði
Hæ krúsla.. ef þú ætlar að koma heim fyrir eurovision þá er forkeppnin um kvöldið 18 maí. En þú kemur örugglega heim um morgunin er það ekki? Annars hlakka ég bara voða mikið til að sjá þig.. Knús og koss
Bergur skrifaði
Það verður algjör synd og mikill missir ef þú ákveður að leggja skóna á hillina. En það er gott að vita að Eyja er fundin!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.