Jahérna... bara seinasti skóladagurinn á þessari önn liðin og ekkert eftir nema að massa prófin! Þau verða ekki svo slæm núna og held ég að þetta verði bara ágætt! Það er búið að vera fáranlega lítið að gera seinustu vikurnar svo ég er orðin alger letihaugur og finnst bara ágætt að fara að læra fram á nótt næstu vikuna.. alltaf pínu stemmning Er búin að vera að undirbúa huges presentation og project í biomechanics tímanum mínum í allan vetur sem ég er núna að leggja lokahöndina á... æðislegt að sjá fyrir endann á þessu
Annars eru jú seinustu dagar búinir að vera rosa rólegir, þurfti að fá einhverja kvefpest og hálsbólgu um helgina og er núna komin með hósta ofan í lungu!! Þanning að það var ekki mikið gert´um helgina, fór í pínu verslunarleiðangra og deit með Kristu roomie Það var líka tómlegt hérna því Sigrúnin mín fór til Iowa að keppa og gekk bara rosa vel.. er alveg svaka spennt að fylgjast með framhaldinu, hún á eftir að standa sig stelpan Ég sjálf hef ekki náð að hlaupa mikið seinustu daga út af kvef ógeðinu og ég er líka hætt að þora að hlaupa í skóginum okkar vegna snákanna sem eru komnir á stjá í hitanum. Jill roomie-inn minn steig næstum því um daginn á huges feita, brún-röndótta slöngu og það er nóg fyrir mig til að halda mig frá þessum stígum Er með snákafóbíu dauðans!! Pöddurnar hérna inni eru líka að gera mig brjálaða, langar ekki að vita hvað er skríðandi á mér meðan ég er sofandi!!
Farið vel með ykkur í prófunum, Love, little Eyja
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.